Marqués De Arviza

Bodegas Marqués de Arviza er hefðbundin fjölskylduvíngerð og sú næst elsta sem framleiðir vín í La Rioja á Spáni. Aðstaða þess er frá árinu 1874 og er byggð yfir meira en 500 metra af upprunalegu „calados“ XVI og XVII öldinni (neðanjarðar kjallara) sem gefa vínunum mikil gæði og fágun sem hvert um sig hefur mikinn og sterkan persónuleika.

Sagan

í gegnum marga ættliði frá árinu 1874

Lífsspeki

hugsjón, metnaður og vandvirkni

Marqués de Arviza eru staðráðin í að bjóða upp á framúrskarandi vín með mikinn persónuleika, reyna að endurspegla landið sem þau koma frá og greina möguleikana sem hver framleiðsla og hvert afbrigði hafa upp á að bjóða til að þróa hvern vínstíl.

Tvíþætt val er á þrúgum sem fara fram á flokkunarborðum sem eru annars vegar í víngerðinni og hins vegar á víngarðinum. Þrúgurnar eru síðan pressaðar í steyptum kerjum sem eru frá árinu 1874 sem fullkomlega halda ákjósanlegu hitastigi fyrir allt áfengis- og malólaktíska gerjunar ferlið.

Vínekrur Marqués de Arviza eru að mestu staðsettar í bænum Clavijo. Vínekrurnar eru í um 600m hæða að meðaltali og njóta því sérstaks meginlands örloftslags sem er samsett af Miðjarðarhafs loftslagi og loftslagi Atlantshafsins.

Þetta ýtir undir þroska þrúgana og er ívilnandi fyrir frekari vinnsluferli. Marqués de Arviza eiga 45 hektara alls, staðsettir á yndislegu svæði sem hjálpar til við vöxt þrúgunnar. Elstu vínekrurnar eru notaðar til að búa til þeirra bestu og fínustu vín.

Vínekrur

kjör aðstæður fyrir betri þrúgur