Nánari upplýsingar
Vert er að benda á að Selecction Especial er eitt af fáum vínum á Spáni sem er keypt og samþykkt af spænsku konungsfjölskyldinni og er með svokallaðan „Royal“ stimpil.
Áður en Selecction Especial vínið er sett á flöskur fer það í gegnum hreinsunar- og stöðugleikaferli og síðan síunarferli í þeim tilgangangi að varðveita öll einkenni vínsins . Engu að síður, með tímanum, vegna notkunar á mjög viðkvæmri tækni, geta náttúruleg setlög komið fram.
Hérað | Rioja – Spánn |
Þrúga | 100% Tempranillo |
Vínekra og uppskera | Uppskeran fer fram þegar fenólskum og tæknilegum þroska er náð, þess vegna er dagsetning uppskeru breytileg á hverju ári. Klasar og vínber eru valin eitt af öðru á vínakrinum. Viðbótarval fer fram í kjallaranum til að tryggja að vínberin, sem notuð eru til að framleiða vínið, séu í óaðfinnanlegu ástandi. |
Vínframleiðsla | Til að fá ríkari lit og ilm er gerð kuldabreyting fyrir gerjun. Þetta ferli á sér stað nokkrum dögum fyrir alcohol gerjunina, sem byrjar mjög hægt, í steyptum kerjum og við mjög lágan hita. Hitinn eykst svo smám saman þar til hitastigið nær 26°C (78,8°F). |
Framleiðslu hitastig | |
Tegund víns | Selección Especial er þroskað rauðvín. |
Öldrun | 18 mánuðir í frönskum eikartunnum. Vínið er síðan fínstillt í flöskunni í hálft ár. |
Litur | Djúpur rauður með smá af fjólubláum lit. |
Ilmur | Mjög ríkur ilmur, ávaxtakenndir tónar skera sig úr umfram viðartóna. Við skynjum svarta ávexti eins og brómber og plómur ásamt krydduðum tónum sem koma fram við að hafa vínið í eikartunnum, sem veita fágun. Ristaðir tónar birtast líka smám saman. |
Bragð | Vínið hefur mikla uppbyggingu og fyllingu. Það er með gott jafnvægi og er sem flauel í munni. Það hefur skemmtilegt og langvarandi eftirbragð. |
Borðhiti | Milli 16°C og 18°C (61°F – 64°F). |
Áfengisinnihald | 13,5% Vol. |
Passar með | Kalt og hvítt kjöt, kjúklingur, plokkfiskur, pasta og ostum. |
Geymsla | Geymið á myrkum stað, við stöðugan hita sem er ekki hærri en 16°C (61°F) og við 80% raka. |