Selección Especial

Verð (6 flöskur)

32.964 kr. án/vsk

Seleccion Especial
Selección Especial fær nafnið vegna tvöföldunar á valferli sem þrúgurnar fara í gegnum. Ávextirnir koma frá víngörðum með litla framleiðslu sem eru í 620m hæð. Í gegnum nefið finnst hvað vínið er vel samsett af svörtum ávöxtum og ristuðum tónum sem kynna á fullkominn hátt ríkulegan, glæsilegan og flauelskenndan keim vínsins.

Nánari upplýsingar

Vert er að benda á að Selecction Especial er eitt af fáum vínum á Spáni sem er keypt og samþykkt af spænsku konungsfjölskyldinni og er með svokallaðan „Royal“ stimpil.

Áður en Selecction Especial vínið er sett á flöskur fer það í gegnum hreinsunar- og stöðugleikaferli og síðan síunarferli í þeim tilgangangi að varðveita öll einkenni vínsins . Engu að síður, með tímanum, vegna notkunar á mjög viðkvæmri tækni, geta náttúruleg setlög komið fram.

HéraðRioja – Spánn
Þrúga100% Tempranillo
Vínekra og uppskeraUppskeran fer fram þegar fenólskum og tæknilegum þroska er náð, þess vegna er dagsetning uppskeru breytileg á hverju ári. Klasar og vínber eru valin eitt af öðru á vínakrinum. Viðbótarval fer fram í kjallaranum til að tryggja að vínberin, sem notuð eru til að framleiða vínið, séu í óaðfinnanlegu ástandi.
VínframleiðslaTil að fá ríkari lit og ilm er gerð kuldabreyting fyrir gerjun. Þetta ferli á sér stað nokkrum dögum fyrir alcohol gerjunina, sem byrjar mjög hægt, í steyptum kerjum og við mjög lágan hita. Hitinn eykst svo smám saman þar til hitastigið nær 26°C (78,8°F).
Framleiðslu hitastig
Tegund vínsSelección Especial er þroskað rauðvín.
Öldrun18 mánuðir í frönskum eikartunnum. Vínið er síðan fínstillt í flöskunni í hálft ár.
LiturDjúpur rauður með smá af fjólubláum lit.
IlmurMjög ríkur ilmur, ávaxtakenndir tónar skera sig úr umfram viðartóna. Við skynjum svarta ávexti eins og brómber og plómur ásamt krydduðum tónum sem koma fram við að hafa vínið í eikartunnum, sem veita fágun. Ristaðir tónar birtast líka smám saman.
BragðVínið hefur mikla uppbyggingu og fyllingu. Það er með gott jafnvægi og er sem flauel í munni. Það hefur skemmtilegt og langvarandi eftirbragð.
BorðhitiMilli 16°C og 18°C (61°F – 64°F).
Áfengisinnihald13,5% Vol.
Passar meðKalt og hvítt kjöt, kjúklingur, plokkfiskur, pasta og ostum.
GeymslaGeymið á myrkum stað, við stöðugan hita sem er ekki hærri en 16°C (61°F) og við 80% raka.